Um Macron
Macron var stofnað 1971 í Bologna á Ítalíu. Upphaflega framleiddi fyrirtækið vörur fyrir önnur merki, þ.á.m. Nike, Adidas og Reebok. Árið 2001 varð stefnubreyting og áhersla lögð á framleiðslu íþróttafatnaðar fyrir hópíþróttir.
Undanfarin ár hefur fyrirtækið bætt við einstaklingsíþróttum og götufatnaði með góðum árangri. Nýtískuleg og framúrstefnuleg hönnun hafa gert Macron að einum mest vaxandi íþróttavöruframleiðanda í heimi. Macron Store Reykjavík opnaði árið 2015.
MACRON 4 THE PLANET
Macron 4 The Planet samanstendur af röð verkefna sem fyrirtækið tileinkar sér til þess að stuðla að aukinni sjálfbærni í umhverfismálum. Öll svið fyrirtækisins verða fyrir áhrifum af þessu “græna” viðhorfi, allt frá framleiðslu vörunnar til dreifingar.
Meðvitað val sem byrjar á því að búa til hágæða flíkur, hannaðar til að endast í langan tíma. Að bjóða upp á hágæða vörur sem endast yfir tíma þýðir að framleiða betur og minna; draga úr orkunotkun, skaðlegum útblæstri og sóa ekki aðlindum.
Eitt af okkar kjarnaverkefnum er framleiðslan á auknum fjölda flíka í Eco-Fabric, búið til úr 100% endurunnum plastflöskum og hefur það verið vottað af Global Recycled Standard.
Við framleiðslu á einni treyju eru 13 plastflöskur endurunnar.
Einnig hefur verið unnið að því að hagræða og breyta efnum sem notuð hafa verið í umbúðir og með því draga verulega úr pappírs og plastnotkun og nota því 100% vottað endurunnið plast fyrir fjölnotapoka.
Macron á Suðurnesjum
Rekstraraðili:
Víkin mín ehf.
kt. 610720-1370
Verslun:
Víkurbásar / Macron Suðurnes
Njarðarbraut 9
260 Reykjanesbær
Sími: 620 6220
sala@macronsudurnes.is
Vsk. nr. 138277
Skilmálar
ALMENNT
Seljandi er Víkin mín ehf., kt. 610720-1370. Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikningi. Kaupandi verður að vera fjárráða til þess að eiga viðskipti við macronsudurnes.is.
PANTANIR
Macronsudurnes.is staðfestir pöntun með tölvupósti um leið og greiðsla hefur borist.
VERÐ
Verð er alltaf með virðisaukaskatti. Macronsudurnes.is áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara. Öll verð eru í íslenskum krónum og eru birt með fyrirvara um prentvillur og myndarugl. Macronsudurnes.is áskilur sér rétt til að hætta við viðskiptin hafi rangt verð eða röng mynd fylgt vörunni á vefsíðunni.
AFGREIÐSLA
SENDINGARKOSTNAÐUR
Sendingarkostnaður bætist við verð vöru áður en greiðsla fer fram. Ef pantað er fyrir meira en 25 þúsund er í boði frí heimsending, hvert á land sem er.
AFGREIÐSLA OG AFGREIÐSLUTÍMI
Afgreiðslutími er 3-4 virkir dagar eftir að greiðsla hefur borist, að því gefnu að varan sé til á lager.
GREIÐSLUMÁTI
Hægt er að greiða með kreditkorti, millifærslu, Netgíró og Pei:
1. Kreditkort – Hægt er að greiða vöruna í vefversluninni með kreditkorti í gegnum örugga greiðslugátt Borgunar.
2. Millifærsla – Pöntun er samþykkt þegar millifærsla er kláruð. Pöntun telst ógild berist greiðsla ekki innan 24 klst.
3. Netgíró – Kynntu þér málið á netgiro.is
4. Pei – Kynntu þér málið á pei.is.
SKILARÉTTUR
Skilaréttur er 14 dagar frá afhendingu. Vörur þurfa að vera í sínu upprunalega ástandi og kvittun þarf að fylgja.
Ath. ekki er hægt að skipta vörum sem hafa verið merktar með nafni eða númeri.
Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema um ranga eða gallaða vöru sé að ræða.